Nýtt Líf
Neyddust til að endurmeta lífið
Tískudagbók
Sissa í undirfataversluninni Systrum opnar fataskápinn og sýnir brot af því sem henni líkar best.
Vortískan
Vorið nálgast og helstu hönnuðir heims hafa kynnt nýjasta nýtt. Metallitir, silki og pallíettur, flæða um allt. Röndótt, doppótt og appelsínugult er líka heitt og það kennir ýmissa fleiri grasa.
Menning
Ýmislegt skemmtilegt er fram undan, lyftu þér upp.
Lestu
Þórarinn Þórarinsson rýnir í góðar bækur.
Hlustaðu
Tracy Chapman er komin aftur á sjónarsviðið. Nýtt Líf dustar rykið af gömlum plötum sem dásama land og þjóð.
Á bak við myndavélina
Margir af þekktustu ljósmyndurum landsins sitja fyrir hjá Agnesi Þorsteinsdóttur.
Gott í gogginn
Spaghettí með skelfiski í boði La Primavera.
Kíktu inn
Nýtt Líf gægist inn til Spessa ljósmyndara og Áróru Gústafsdóttur.
Ætlar að skipuleggja líf sitt
Sara María Júlíusdóttir í Nakta apanum er síhlæjandi og gæðir borgina lífi.
Teiknar skip og bóndabæ
Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona er á fljúgandi uppleið. Hún er að springa úr ást og leikur í einu umdeildasta verki seinni tíma, Rústað.
Jafnánægð með Geir atvinnulausan
Inga Jóna Þórðardóttir er eiginkona Geirs H. Haarde. Veikindi Geirs hafa breytt framtíðaráformum þeirra en þau horfa bjartsýn fram á veginn. Sjómannsdóttirin frá Akranesi segir svekkelsi skila engu og þekkir ekki annað en að segja skoðun sína. Hún hætti í stjórn FL Group þar sem hún taldi fyrirtækið tefla of djarft og sér ekki eftir því.
Óheppilegt starf fyrir konu
Miðaldra karlpungar eru frekir til fjörsins í íslenskum glæpasögum en þær fáu konur sem þar láta að sér kveða gefa körlunum þó ekki þumlung eftir.
Makaskipti í kynlífi
Nýtt Líf kynnti sér kima kynlífs sem fara leynt. Makaskipti er leið sem sumir kjósa til þess að lífga upp á kynlífið og svala lostanum.
Augu þín sáu mig
Tískuþáttur Karls Petersson ljósmyndara. Undirföt á Hótel Borg.
Förðun
Fallegar förðunarmyndir af Alexöndru Helgu Ívarsdóttur. Ólafía Sólveig Einarsdóttir leiðbeinir lesendum um flotta förðun.
Í uppáhaldi
Uppáhaldsvörur Nýs Lífs fyrir andlit og til förðunar fá sitt pláss.
Nauðsynjar sjónvarpskvenna
Svanhildur Hólm Valsdóttir, Þóra Arnórsdóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir komast helst ekki í gegnum daginn án þess að hafa vissa hluti við höndina.
Tíu atriði
Karen Kjartansdóttir fer yfir hvað karlar vissu ekki um konur.
Fyrsti kossinn
Fjögur pör segja okkur frá fyrstu kynnum, nánar tiltekið þegar fyrsti kossinn small á vörum.
Lífsgæði eða efnislífsgæði
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sálfræðingur skrifar um lífsgæðakapphlaupið, þjóðaríþrótt Íslendinga.
Piparsveinninn
Piparsveinninn saknar ekki boða í barnaafmæli en vill þó fá fleiri boð.
Stjörnuspá
Hvað segja stjörnurnar um þig?
Skóli lífsins
Egill Helgason er dálítið hégómlegur, þarf að passa sig.

