Sagan Öll
Sagan Öll
SAGAN ÖLL er nýtt tímarit á Íslandi sem kemur út mánaðarlega. Umfjöllunarefnið er Íslandssagan og mannkynssagan í máli og myndum. Nú verður mannkynssagan bæði forvitnileg og skemmtileg því framsetningin er mjög lifandi og með fjölda skýringarmynda.
Þriðja tölublað af SÖGUNNI ALLRI kemur út á morgun. Líkt og fyrstu tölublöðin er það sneisafullt af fróðlegu sögulegu efni sem sett er fram á skemmtilegan máta.
Che Guevara
Það eru liðin 40 ár síðan lík Che Guevara var flutt til bólivísku smáborgarinnar Vallegrande og bundið neðan í lendingarbúnað þyrlu eins og hver annar kjötskrokkur. Tilgangurinn var að sýna heimspressunni líkið. Þannig hugðist bólivíska herstjórnin sanna fyrir umheiminum að tilraun Che Guevara til að flytja út byltinguna á Kúbu hefði mistekist.
Eru Herúlar forfeður Íslendinga?
Herúlar voru germanskur þjóðflokkur sem flakkaði víða um Evrópu og hvarf svo af spjöldum sögunnar. Getur verið að þeir hafi sest að í Noregi og síðar flutt sig um set og byggt Ísland?
Sjálfstætt Ísland 1809?
„Í upphafi 19. aldar réðu tvö konungsríki lögum og lofum á Atlantshafi, breska konungsríkið og hið danska,“ segir í upphafi ritgerðar Ólafs Ragnars Grímssonar um íslenska þjóðernishyggju frá 1978. „Bæði innihéldu fjölmörg þjóðarbrot, Englendinga, Skota, Walesbúa, Íra og Dani, Norðmenn, Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga, jafnframt því sem þau stjórnuðu fjöldamörgum nýlendum í öðrum heimshlutum,“ segir Ólafur jafnframt. Þessi konungsríki voru þó langt frá því að vera jafnvíg, eins og kom í ljós þegar þau lentu sitt hvort sínum megin víglínunnar í hringiðu Napóleonsstríðanna.
Fjársjóðir í hafinu
Víða í undirdjúpunum liggja miklir fjársjóðir á hafsbotni. Þekktasta flak seinni tíma er Titanic en fjöldi annarra skipa, sem voru hlaðin dýrmætum farmi, liggja á hafsbotni.
Doktor Livingstone
David Livingstone fór upphaflega til Afríku sem trúboði en smátt og smátt varð hann þekktari sem landkönnuður. Hann leitaði svars við hinni ævafornu spurningu um upptök Nílar og frásagnir hans frá Afríku nutu mikilla vinsælda.
Glæsileg verðlaun í sögugetraun barnanna!
Krakkasagan er á sínum stað og að þessu sinni skoðum við átök Persa og Grikkja. Sögugetraun krakkanna er fyrir alla krakka, sem geta unnið frábær verðlaun.
Fjöldi annarra fróðleiksmola og greina prýðir blaðið, þar má helst nefna greinar um
fornar ástir Steingríms Thorsteinssonar þjóðskálds og Guðrúnar Thorstensen, Elísubetu I Englandsdrottningu og hinn herskáa þjóðflokk Húna. Spurt og svarað, getraunin og aðrir fastir liðir eru að sjálfsögðu á sínum stað.
SAGAN ÖLL – fyrir alla fjölskylduna!
Ritstjóri tímaritsins er Illugi Jökulsson sem er þjóðinni að góðu kunnur sem blaðamaður, ritstjóri, pistlahöfundur og ritstjóri verksins Ísland í aldanna rás.

