Sagan Öll

so0704

Tímarit fyrir alla fjölskylduna

Annað tölublað af SÖGUNNI ALLRI kemur út á morgun, líkt og fyrsta tölublað er það sneisafullt af fróðlegu sögulegu efni sem sett er upp á skemmtilegan máta.

Sjóorrustan við Salamis

Tíu árum eftir smánarlegan ósigur föður síns við Maraþon 490 f.Kr. ákvað nýr konungur Persa, Xerxes I, að ganga milli bols og höfuðs á Grikkjum í eitt skipti fyrir öll. Hann kallaði saman stærsta her sem sögur höfðu þá farið af þegar hermenn ótal þjóða úr víðlendu heimsveldinu réðust gegn Grikkjum, sem vörðu heimahaga sína. Xerxes I tapaði við Salamis, en ef hann hefði unnið er hugsanlegt að lítið hefði orðið úr vestrænni menningu.

Síðari heimsstyrjöldin – orrustan um Bretland

Sumarið 1940 háðu Konunglegi breski flugherinn og hinn þýski Luftwaffe eina afdrifaríkustu loftorrustu sögunnar. Báðir aðilar urðu fyrir miklu tjóni en að lokum tókst Bretum að afstýra áætlunum Hitlers um innrás í Bretland.

Tískuþáttur – Tískan á tuttugustu öld

Mestu breytingar í sögu tískunnar urðu á 20. öld: stíf lífstykki og strangar reglur um klæðnað viku fyrir mjúkum, teygjanlegum efnum og frelsi í klæðaburði. Um aldamótin 1900 var tískan forréttindi yfirstéttanna, öld síðar varð hún til á götum stórborganna.

Krakkasagan – SAGAN ÖLL útskýrir sögu Íraks fyrir börnum

Fyrir rúmlega 1.300 árum lögðu Arabar Írak undir sig er þeir komu frá Arabíuskaga. Þeir fluttu með sér nýja trú, íslam. Þeir kalla guð sinn Allah en hann er mjög svipaður guði kristinna manna. Arabarnir byggðu sér nýja höfuðborg og kölluðu hana Bagdad. Í langan tíma var Bagdad stærsta og merkilegasta borg heimsins.

Glæsileg verðlaun í sögugetraun barnanna!

Fjöldi annarra fróðleiksmola og greina prýða blaðið, þar má helst nefna greinar um fornar ástir Gunnars og Hallgerðar og beitiskipið Potemkin og skoðað er dularfullt mál um þingmanninn sem hvarf sporlaust. Þá er spurt: Hvaðan er skjaldarmerki Íslands upprunnið, Kemur það úr Gamla testamentinu? Hvaðan kemur táknið @?

SAGAN ÖLL – fyrir alla fjölskylduna!

Ritstjóri tímaritsins er Illugi Jökulsson sem er þjóðinni að góðu kunnur sem blaðamaður, ritstjóri, pistlahöfundur og ritstjóri verksins Ísland í aldanna rás.



 

eplice - System error
 
Error has occured, press the back button on your browser.
Please try again later
 error description :



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.