Sagan Öll
Skemmtilegt og fróðlegt!
SAGAN ÖLL er skemmtilegt og fróðlegt tímarit, undir ritstjórn Illuga Jökulssonar, sem hefur tekist afar vel að höfða til allrar fjölskyldunnar. Í hverju tölublaði eru meðal efnis sniðugar greinar, skemmtilegir punktar, getraun fyrir alla til að spreyta sig á og fyrir krakkana eru settar upp á einfaldan hátt skemmtilegar staðreyndir úr sögunni.
Napoleon Bonaparte
Við segjum frá keisara Frakklands sem lagði undir sig nálega alla Evrópu með ótrúlegum sigrum á vígvellinum en vann ekki síður sigra á sviði ástarinnar.
Víetnamstríðið
Í áratugi börðust Víetnamar gegn herliði vestrænna stórvelda, fyrst Frakka og síðan Bandaríkjamanna. Stríðið hafði víðtæk áhrif á Vesturlöndum.
Dönsku kóngarnir
Þeir réðu öldum saman yfir Íslandi en landsmenn þekktu þá aðeins úr fjarlægð. Hverjir voru þeir í raun og veru? Jón Þ. Þór sagnfræðingur kannar málið fyrir Söguna alla.
Erótík í Rómaveldi
Viðhorf Rómverja til kynlífs og erótíkur var allt annað en tíðkast á vorum dögum. Sagan öll segir alla söguna!
Hver var höfundur Njálu?
Hann merkti sér ekki söguna og langvinnar deilur hafa staðið um hver hann var. Við veltum nokkrum möguleikum fyrir okkur.
Súkkulaðisagan
Indjánar kölluðu súkkulaði „fæðu guðanna“ og enn í dag þykir mörgum súkkulaði aldeilis guðdómlegt. Sagan öll fjallar um súkkulaðibaunina og sögu hennar.
Grafið úr gleymsku - Adolf Hitler og yfirvararskeggið.
Þúsund orð - Bygging Landsbankans.
Spurningar og svör - Var Dracula greifi til í raun og veru?
Fyrir 20 árum - Ertu nokkuð búin/n að gleyma ... Borgaraflokknum?
Örlagastundin - Þegar Adolf Hitler komst til valda 1933.
Furðusagan - Skipskötturinn af orrustuskipinu Bismarck.
Í stuttu máli - Ævi George Washingtons, fyrsta forseta Bandaríkjanna.
Krakkasagan - Bandaríkjamenn lenda á tunglinu 1969.
Sögugetraun barnanna - Glæsileg verðlaun í boði.
Sögugetraun fullorðinna - Og hver er maðurinn?

