Sagan Öll
Musterisriddarar
SAGAN ÖLL er skemmtilegt og fróðlegt tímarit í ritstjórn Illuga Jökulssonar, sem hefur tekist afar vel að höfða til allrar fjölskyldunnar. Í hverju tölublaði er meðal efnis: sniðugar greinar, skemmtilegir punktar, getraun fyrir alla til að spreyta sig á og fyrir krakkana eru settar upp á einfaldan hátt skemmtilegar staðreyndir úr sögunni.
MUSTERISRIDDARARNIR - Skyldi það hafa hvarflað að Jacques de Molay, stórmeistara musterisriddaranna, þegar hann var leiddur á bálið í Frakklandi 1314 að hann og regla hans ættu eftir að lifa í vitund fólks um ókomnar aldir – og að nærri 700 árum eftir dauða hans ættu musterisriddararnir eftir að skipa mun tryggari sess í sögulegri vitund almennings en kóngur sá og páfi sem ábyrgir voru fyrir brunanum?
Í þessu hefti af Sögunni allri segjum við frá því sem sannanlegt er um musterisriddarana - en nefnum líka leyndardómana!
SVARTIDAUÐI - Milljónir manna um alla Evrópu létu lífið í einhverri mestu plágu sögunnar. Við segjum alla sorgarsöguna.
TINNI - Hann er áreiðanlega vinsælasti blaðamaður heims, bæði fyrr og síðar!
HINRIK KÓNGUR OG KONURNAR - Hinrik VIII er einn nafntogaðasti kóngur enskrar sögu og þá ekki síst fyrir kvennamál sín. Við segjum frá honum og eiginkonunum sex.
BJÓRINN - Hver er saga þessa vinsæla drykkjar? Við upplýsum hvar Davíð keypti ölið!
MÚHAMEÐ - Miklar deilur hafa risið út af birtingu vestrænna blaða á skopmyndum af Múhameð spámanni. En fyrir nokkrum öldum gerðu múslimar sjálfir óhikað myndir af spámanninum.
KRAKKASAGAN - 200 ár eru liðin frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar. Við segjum krökkunum frá honum og ljóðum hans.
Grafið úr gleymsku – Þúsund orð – Spurningar og svör – Svartidauði – Hinrik og húsfreyjur hans – Örlagastundin – Fast var kneifað ölið ? – Varstu nokkuð búinn að gleyma ? – Furðusagan – Sögugetraun – Í stuttu máli

