Skuggi - Bækur

dagbok

Dagbók frá Diafani

Lipur stílsnilld Jökuls Jakobssonar, hlýlegur húmor hans og djúp samlíðan með mannfólkinu naut sín hvergi betur en í bók sem hefur verið ófáanleg í áratugi.

Haustið 1966 héldu hjónin Jökull Jakobsson og Jóhanna Kristjónsdóttir til Grikklands ásamt þremur ungum börnum sínum. Þau enduðu í þorpinu Diafani á eyjunni Karpaþos. Frumstæðasta þorpinu á afskekktustu eyjunni.

Lesa meira
 
sri

Velkomin til Íslands

Líf Sri Rahmawati í Indónesíu, móttökurnar á Íslandi, líf í heljargreipum ofbeldismanns og rannsókn lögreglunnar á hörmulegum örlögum hennar – öllu þessu lýsir Ragnhildur á einlægan, spennuþrunginn og hjartnæman hátt. Lesa meira
 
sagamannsin

Saga mannsins

SAGA MANNSINS er sannkallað stórvirki. Á 668 blaðsíðum er farið yfir sögu mannsins frá örófi til okkar dags. Verkið er einstaklega viðamikið, bæði fróðlegt og skemmtilegt. Einstæð útlitshönnun og skipulagning bókarinnar gerir notkun hennar auðvelda og eykur ánægju lesenda.

Lesa meira
 
Mordin_i_betlehem_jpg_250x650_q95

Morðin í Betlehem

Bókin segir frá palestínska kennaranum Omar Yussef sem þarf að takast á við dularfullt sakamál í fæðingarborg frelsarans. Þegar eftirlætisnemandi hans, George Saba, er handtekinn fyrir morð verður Omar sannfærður um að komið hafi verið á hann rangri sök Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.