Skuggi - Bækur
Þriðji Hver
Faðir Adams Wisharts greindist með krabbamein og varð alvarlega veikur. Adam vildi fræðast um hvað krabbamein væri og hvaða áhrif það hefði bæði á sál og líkama. Slík bók var ekki til svo hann – frægur sjónvarpsmaður í Bretlandi – varð að skrifa hana sjálfur. Þetta er magnþrungin bók sem leiðir lesandann um ókunna stigu bæði líkama og sálar, þegar maðurinn stendur andspænis dauðleika sínum. Lesandinn kynnist baráttu sjúklingsins sem aldrei gefst upp og hugarástandi aðstandenda. Fróðleg, sorgleg en þó mjög falleg bók sem allir ættu að lesa.
Höfundur: Adam Wishart
ISBN: 978-9979-9839-5-8
Útgáfa: Nóvember 2007

