Skuggi - Bækur
Aðgerð Pólstjarna
Aðgerð Pólstjarna er umfangsmesta rannsókn sem íslenska fíkniefnalögreglan hefur nokkru sinni ráðist í. Rannsóknin stóð í tíu mánuði og barst víða um Evrópu, til Danmerkur, Hollands, Þýskalands og Noregs. Lögregluyfirvöld í þessum ríkjum lögðu íslensku lögreglunni lið, en aðgerðir þeirra voru samhæfðar með aðstoð Europol.
Í þessari einstæðu bók segir Ragnhildur frá rannsókninni og glæpnum. Lesendur fá glögga mynd af störfum lögreglunnar og þeirra sem flytja inn eiturlyf til Íslands.
Ragnhildur Sverrisdóttir er einn færasti blaðamaður landsins og sérfræðingur í lögreglumálum. Hún starfaði á Morgunblaðinu í 23 ár og í hálfan annan áratug skrifaði hún fréttir og fréttaskýringar um lögreglu- og dómsmál, svo hún þekkir frábærlega til þess heims sem fjallað er um í þessari bók. Ragnhildur er lögfræðingur að mennt.
Höfundur: Ragnhildur Sverrisdóttir
ISBN: 978-9979-9839-6-5
Útgáfa: Desember 2007

