Skuggi - Bækur
Tré Janissaranna [Kilja]
Nótt eina árið 1836 er ung stúlka kyrkt í kvennabúri soldánsins, og á sama tíma er liðsforingja slátrað á götum Istanbúl. Borgin er sem púðurtunna og hið glæsilega heimsveldi Tyrkjasoldáns riðar til falls. Hinar fornu úrvalssveitir Janissaranna virðast koma við sögu, en hvernig? Aðeins einn maður getur leyst gátuna! Við kynnum Yashim, sérlegan ústsendara soldánsins og gelding úr kvennabúrinu.
Tré Janissaranna vann hin virtu Edgar-verðlaun í Bandaríkjunum. Það eru eftirsóttustu verðlaun sem glæpa- og spennusögur geta fengið. Æsispennandi og bráðskemmtileg sakamálasaga úr hinu litríka Tyrkjaveldi fyrri tíma.
Höfundur: Jason Goodwin
ISBN: 978-9979-9839-9-6
Útgáfa: Maí 2008

