Skuggi - Bækur
Saga ástarinnar
Alma Singer er fjórtán ára og vill framar öllu lækna einmanaleika móður sinnar. Lausnin gæti verið falin í bókinni sem mamma hennar er að þýða og því leggur hún upp í leit að höfundinum.
Leo Gursky rembist við að lifa aðeins lengur, hann bankar í ofninn sinn á hverju kvöldi til að láta nágrannann vita að hann er ekki hrokkinn upp af. Hann hugsar stöðugt um ástina sem hann glataði fyrir sextíu árum í þorpinu sínu heima í Póllandi, ástina sem blés honum eldmóð í brjóst til að skrifa bók. Leo veit ekki enn að bókin lifði líka af þessi ár, ferðaðist yfir höf og brúaði bil milli kynslóða. Hún breytti líka að minnsta kosti einu lífi?
Afar hugljúf bók sem tilnefnd var til Orange-bókmenntaverðlaunanna. Verðlaunin eru einungis veitt konum af dómnefnd sem skipuð er konum. Bókin hefur verið þýdd á yfir 30 tungumál og stendur nú til að gera kvikmynd eftir bókinni. Það eru þó ekki aðeins konur sem hafa heillast af þessari sögu um tengsl ástar og sögu, fortíðar og nútíma. Nóbelsverðlaunahafinn J. M. Coetzee hafði þetta um bókina að segja: „Heillandi, blíð og afar frumleg.“
Höfundur: Nicole Krauss
ISBN: 978-9935-402-01-1
Útgáfa: Maí 2008

