Skuggi - Bækur
Morðin í Betlehem
Bókin segir frá palestínska kennaranum Omar Yussef sem þarf að takast á við dularfullt sakamál í fæðingarborg frelsarans. Þegar eftirlætisnemandi hans, George Saba, er handtekinn fyrir morð verður Omar sannfærður um að komið hafi verið á hann rangri sök. George er sakaður um samstarf með Ísraelsmönnum eftir að palestínskur skæruliðaforingi er myrtur. Eftirlætisnemandi Omars stendur nú frammi fyrir dauðarefsingu og veitir það gamla sögukennaranum innri kraft sem hann hélt að væri löngu glataður.
Bókin varpar skýru ljósi á flókinn menningarheim og erfið tengsl Ísraela og Palestínuaraba en er um leið afar læsileg og hörkuspennandi. Morðin í Betlehem er fyrsta bókin í röð spennusagna um hinn óvænta spæjara Omar Yussef.
Höfundur: Matt Rees
ISBN: 978-9935-402-00-4
Útgáfa: Maí 2008

