Skuggi - Bækur

sagamannsin

Saga mannsins

Dýrgripur fyrir hvert heimili

SAGA MANNSINS er sannkallað stórvirki. Á 668 blaðsíðum er farið yfir sögu mannsins frá örófi til okkar dags. Verkið er einstaklega viðamikið, bæði fróðlegt og skemmtilegt. Einstæð útlitshönnun og skipulagning bókarinnar gerir notkun hennar auðvelda og eykur ánægju lesenda.

Í þessari frábæru bók er saga mannsins rakin frá fyrstu apamönnunum í Afríku til Cristiano Ronaldos. Kóngar og drottningar, alþýðan og aðallinn, spekingar og illmenni, herforingjar og listamenn, allir fá sitt pláss á síðum þessarar þykku en þó handhægu bókar. Styrjaldir og plágur, stórslys og glæstir sigrar, kreppur og framfaraskeið, allt er þetta að finna í bókinni. Gífurlegur fjöldi mynda prýðir bókina og gerir hana að dýrgrip fyrir hvert heimili.

Ritstjóri bókarinnar er Illugi Jökulsson sem um árabil hefur lagt sig fram um að gera sögulega viðburði aðgengilega fyrir íslenskan almenning. Þetta er bók til að lesa frá upphafi til enda en líka til að fletta upp í og glugga í árum saman. Sá sem sekkur sér á kaf í söguna verður aldrei einmana.

Úr dómi Jóns Þ. Þórs:

"Bókin sem hér er til umfjöllunar er með nokkuð öðru sniði en ég minnist að hafa áður séð. Hún fjallar um gjörvalla sögu mannkynsins, frá upphafi til okkar daga, og er í senn lestrarbók og uppflettirit. Efninu er þannig skipað að lesendur geta sjálfir valið hvort þeir vilja lesa bókina frá fyrstu síðu til hinnar síðustu eða fletta upp á einstökum efnisþáttum. Efnisyfirlit er með þeim hætti að þeir, sem velja síðarnefndu aðferðina, eru fljótir að finna það sem þeir leita að. Allt efni bókarinnar er skýrt og vel sett fram. Hún hefur að geyma gífurlegan fróðleik og er prýdd miklum fjölda mynda, sem margar segja mikla sögu. Myndatextar eru og góðir og bæta oft miklu við meginmál. Þá er það að minni hyggju kostur við þessa bók að hún er þýsk að uppruna og höfundarnir þýskir fræðimenn. Af því leiðir að sjónarhornið er víðara og ekki jafn leiðinlega engilsaxneskt og oft vill brenna við í breskum og amerískum söguritum, sem algengust eru á markaði hérlendis. Hér er t.d. fjallað allrækilega um sögu annarra heimsálfa en Evrópu og Norður-Ameríku og ýmis minni ríki í sunnan- og austanverðri Evrópu fá viðlíka umfjöllun og hin stærri. Sjálfur hefði ég þó kosið meira efni um Norðurlöndin og lítið sem ekkert segir af Íslandi, Færeyjum og Grænlandi."

"Að minni hyggju er mikill og góður fengur að þessari glæsilegu bók og full ástæða til að óska aðstandendum hennar til hamingju með góðan árangur og vel unnið verk."


Ritstjóri: Illugi Jökulsson
ISBN: 978-9979-9810-7-7
Útgáfa: Nóvember 2008
Verð: 14.870

 

KAUPA

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.