Skuggi - Bækur

sri

Velkomin til Íslands

Sagan af Sri Rahmawati

Ragnhildur Sverrisdóttir blaðamaður segir hér sögu konu sem leitaði hamingjunnar á Íslandi en endaði á forsíðum blaðanna sem fórnarlamb morðingja. Myndir í miðju bókarinnar sýna frá rannsókn málsins, börnin, fjölskylduna og morðingjann sjálfan.

Líf Sri Rahmawati í Indónesíu, móttökurnar á Íslandi, líf í heljargreipum ofbeldismanns og rannsókn lögreglunnar á hörmulegum örlögum hennar – öllu þessu lýsir Ragnhildur á einlægan, spennuþrunginn og hjartnæman hátt.

   Ung kona kom frá Indónesíu til Íslands í leit að betra lífi fyrir sig og börnin sín. Hún var jákvæð, dugleg og tilbúin að leggja mikið á sig. Hún kynntist manni sem hún varð ástfangin af. Allt virtist leika í lyndi.

Fyrst. Svo fór að halla undan fæti.
Sumarið 2004 varð harmleikur.

-- xx -- xx -- xx --

Höfundur: Ragnhildur Sverrisdóttir
ISBN: 978-9979-9810-8-4
Útgáfa: Nóvember 2008
Verð: 3.290 krónur

KAUPA

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.