Stórbrotið útsýni í fallegri penthouse-íbúð
Umsjón: María Erla KjartansdóttirMynd: Ragnhildur Aðalsteinsdóttir Í nýstárlegu hverfi í Urriðaholti býr þriggja manna fjölskylda, María Rós, Sindri og Sól. María er menntaður stærðfræðikennari og er sem stendur í fæðingarorlofi. Sindri er eigandi Ketchup Creative, sem er framleiðslufyrirtæki og auglýsingastofa. Heimili þeirra er staðsett á efstu hæð í fallegri penthouse-íbúð með stórbrotnu útsýni yfir Heiðmörkina. Hverfið hefur jafnt og þétt verið að byggjast upp og var húsið þeirra fullbyggt í lok árs 2019. Heimilið var komið í jólabúning þegar okkur bar að garði, fallegar mínimalískar skreytingar í takt við stíl þeirra beggja. Húsið stendur við Urriðaholtsstræti, teiknað af THG Arkitektum.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn