Skilmálar áskrifta 

  • Áskriftarskilmálar 

    *Uppsögn áskriftar skal tilkynna á vefnum birtingur.is undir mínar síður fyrir 15. hvers mánaðar, og tekur hún gildi frá og með næstu mánaðarmótum frá móttöku.
    *Stofnun prentáskriftar miðast við afhendingu nýjasta tölublaðs.
    *Sendingarkostnaður innanlands er innifalin í verði.
    *Valin áskriftarleið er gjaldfærð með einni færslu á greiðslukort við kaup áskriftarleiðar. *Áskrift endurnýjast sjálfkrafa eftir að áskriftartímabili lýkur sama mánaðardag og til hennar var stofnað nema áskrift sé sagt upp fyrir endurnýjunardagsetningu.
    *Samkvæmt reglum um rafræn kaup, getur viðskiptavinur hætt við kaup sín innan 14 daga, að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til viðskiptavinar. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
    *Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um sé að ræða ranga/gallaða vöru.
    *Öll verð í netverslun eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
    *Verð áskriftarleiða geta breyst án fyrirvara, en verð eru ekki afturvirk á virkum áskriftarleiðum.
    *Gjafabréf eða kóðar skulu ávallt vera staðfestir með upplýsingum um áskrifandann ásamt kortanúmeri. Segja þarf upp fríáskrift fyrir tímann sem gefinn er upp áður en skuldfært er af greiðslukorti.

  • Trúnaður og öryggi 

    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Birtíngur ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

  • Lög og varnarþing 

    Rísi mál vegna samstarfssamnings aðila eða sérsamninga sem tilgreindir eru í skilmálum þessum skal reka það fyrir íslenskum dómstólum.