Um Birtíng
Birtíngur útgáfufélag var stofnað haustið 2006 en áður hét fyrirtækið Fróði. Félagið var stærsti útgefandi tímarita á Íslandi og í dag sá eini sem hefur einhver umsvif á þeim markaði. Þegar mest lét gaf félagið út tíu tímarit en margt hefur breyst á þeim tíma, þmt tæknin og stafræn umhverfi efnis og frétta. Eftir standa þrjú sterk tímarit í blaðaútgáfu, þau eru Gestgjafinn, Hús og híbýli, Vikan og Sumarhúsið og garðurinn en auk þeirra á Birtíngur fjölmörg vörumerki ásamt lénum sem tilheyra þeim. Þau eru Nýtt Líf tískublað, Séð og heyrt og Nýtt líf ásamt lénunum , saganoll.is, husoghibyli.is, birtingur.is, golfbladid.is,gestgjafinn.is, sedogheyrt.is,nyttlif.is,vikan.is, studiobirtingur.is
Birtingur.is er vefur útgáfunnar sem heldur utan um allt efni á rafrænu formi, sem og áhugaverðar greinar og tölublöð.
Vikan er íslenskt kvennatímarit og lífsstílsblað sem kom fyrst út 21. nóvember 1938. Stofnandi þess og fyrsti ritstjóri var Sigurður Benediktsson. Fyrirmyndin var norska blaðið Hjemmet en vikuleg kvennablöð voru þá að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum. Vikan hefur ávallt verið fjölbreytt blað og efnistök snúist jafnt um að takast á við erfið þjóðfélagsmál sem og margvísleg áhugamál og tómstundaiðju. Margir þekktir einstaklingar hafa komið að ritstjórn blaðsins en nefna má, Gísla J. Ástþórsson, Jökul Jakobson og Kristínu Halldórsdóttur. Í gegnum tíðina hefur tímaritið verið leiðandi í blaðamennsku á margvíslegan hátt meðal annars í viðtölum og greinum um málefni sem einkum snerta konur. Nefna má að Vikan opnaði umræðu um margvísleg málefni þar á meðal breytingaskeið kvenna, brjóstakrabbamein, kynbundið ofbeldi og margvísleg mál er snerta mannréttindi og jafnrétti. Einnig var hún fyrsta gagnvirka blað á Íslandi því lesendur gátu sent blaðinu bréf og fengið svör við ýmsum spurningum. Völva Vikunnar er einnig þekkt og hefur spáð fyrir um örlög lands og þjóðar frá því snemma á áttunda áratugnum.
Gestgjafinn hóf göngu sína árið 1981 en þá voru gefin út 6 blöð á ári en síðar urðu þau 12 og fóru mest í 17 blöð á ári í kringum árið 2007. Í dag eru gefin út 8 blöð á ári. Blaðið hefur verið með það að markmiði að birta nýjar og spennandi uppskriftir, áhugaverð viðtöl, greinar og fróðleik um mat, vín og ferðalög og matsölustaði. Gestgjafinn hefur skrásett og varðveitt merkilegan menningararf um matargerð Íslendinga í 40 ár og verið leiðandi á sínu sviði.
Hús og híbýli kom fyrst út árið 1979 og hefur verið gefið út allar götur síðan þá og notið gríðarlegra vinsælda. Blaðið fjallar um hönnun og heimili með áherslu á allt það nýjasta sem er í tísku. Flestan hluta þessa langa skeiðs eru nú gefin út 12tbl á ári. Í blaðinu má finna fjölbreytt heimili, viðtöl við arkitekta og hönnuði ásamt ýmsum fróðleik og ráðum. Blöðin sýna þróun og tísku íslenskra heimilia gegnum áratugina og þau eru því mikilvæg heimild um íslenskan arkitektúr og íslensk húsakynni.
Sumarhúsið og garðurinn kom fyrst út árið 1991 og tók Birtíngur útgáfufélagið við útgáfunni árið 2024. Nafnabreyting var 2002 þegar garðyrkjuritið Við ræktum, garðyrkjuriti sem þau Auður og Páll Jökull gáfu út í 3 ár var sameinað Sumarhúsinu og bættist þá garðurinn við nafnið.
Sumarhúsið og garðurinn er lífstílsblað sem eykur lífsgæði lesenda sinna. Blaðið höfðar til unnenda útivistar og náttúru, frístundahúseigenda og þeirra sem eru á höttunum eftir góðum hugmyndum fyrir heimilið, sem og þeirra sem eiga gróður að áhugamáli eða atvinnu. Það er vandað, hnitmiðað og unnið í samvinnu við fagmenn og af fagfólki, sem eykur gæði þess og trúverðugleika. Blaðið kemur út í prentuðu formi fjórum sinnum á ári hverju.