Komdu í hóp Víkinga
Texti: Ragna Gestsdóttir Víkingamótaröðin samanstendur af fjórum keppnum fyrir hjólafólk og hlaupara. Mótaröðin hefst í maí með utanvegahlaupinu NOW Eldslóðin. Hlaupið er frá Vífilsstöðum meðfram Vífilsstaðavatni og inn að Búrfellsgjá. Í júní er stærsta utanvegahlaup landsins, Hengill Ultra Trail, þar sem keppendur velja um sex leiðir um Hengilssvæðið. KIA-Gullhringurinn sem er hjólreiðakeppnin er þriggja daga keppni í júlí. Víkingamótaröðinni lýkur í lok ágúst með utanvegahjólreiðakeppninni Landsnet MTB þar sem keppendur hjóla frá Skíðaskálanum í Hveradölum. Upplýsingar: vikingamot.is
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn