Fögur völundarsmíð Fabergé
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Líklega tengja flestir nafnið Fabergé eingöngu við hin undrafögru og verðmætu páskaegg sem Peter Carl Fabergé smíðaði fyrir Rómanov-keisarafjölskylduna í Rússlandi. Það er ekki að undra því þau eru slík völundarsmíð að fátt finnst sambærilegt í heiminum. Hins vegar rak Fabergé um árabil vinsælt gullsmíða- og skartgripahönnunarfyrirtæki. Eggin munu þó halda nafni hans á lofti til eilífðar og annað falla í skuggann af þeim. Páskaeggin voru gjafir Alexanders III Rússakeisara til konu sinnar Mariu Feoderovnu og Nikulásar II til móður sinnar. Þau voru smíðuð úr dýrum málmum, skreytt gimsteinum, perlum, smelti, perlumóður og hverju því sjaldfengna lúxushráefni
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn