Lögin úr leikhúsinu
21. apríl 2022
Eftir Ritstjórn Vikunnar

Texti: Ragna Gestsdóttir Leikararnir Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson syngja lög og segja sögur úr leikhúsunum við undirleik Jóns Ólafssonar í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. apríl kl. 20.30. Halli og Gói hófu að syngja lögin úr leikhúsinu norðan heiða árið 2007 þegar þeir störfuðu hjá Leikfélagi Akureyrar. Öll eru lögin úr söngleikjum eða leikritum sem þeir hafa tekið þátt í eða dreymir um að taka þátt í. Þeir syngja og segja sögur á milli laga, sannar og ósannar. Þarna mun fjörið, dramatíkin og bullið ráða ríkjum. Upplýsingar: salurinn.is.
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn