Langvarandi þunglyndi og kvíði hjá þeim sem veiktust verst í COVID-19
Texti: Ragnheiður LinnetMyndir: Hallur Karlsson Alvarleiki veikinda af völdum COVID-19 er ákvarðandi áhættuþáttur fyrir þunglyndi og kvíða ásamt erfiðleikum með svefn samkvæmt nýrri rannsókn sem nær yfir 250.000 manns í sex löndum. Niðurstöður þess efnis voru nýlega birtar í hinu virta vísindatímariti Lancet Public Health. Rannsóknin er unnin undir forystu vísindamanna á Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands en Ingibjörg Magnúsdóttir er fyrsti höfundur greinarinnar. Hún segir að greinilegur munur sé á þeim sjúklingum sem veiktust mikið og annarra sem sluppu betur. Tilgangur með rannsókninni sé að skapa þekkingu sem muni nýtast. Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, segir
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn