Linda P. vill vera fordæmi
Texti: Ragna GestsdóttirMyndir: Instagram Linda Pétursdóttir, heilsuþjálfari, fyrrum ungfrú Ísland og ungfrú heimur, fagnaði nýlega nýjum áfanga. Linda útskrifaðist sem Master Coach og fékk jafnframt verðlaun fyrir velgengni í viðskiptum. „Fyrir sjö árum síðan varð ég gjaldþrota. Í þessari viku útskrifaðist ég sem Master Coach. Ég var enn fremur í topp 1% hópnum af alþjóðlegum lífsþjálfum sem fengu verðlaun fyrir velgengni í viðskiptum,“ sagði Linda. „Og ég er bara rétt að byrja. Ég vil vera fordæmi fyrir konur um allt það sem er mögulegt.“ Á heimasíðu Lindu, www.lindape.com, má kynna sér heilsunámskeiðin sem hún býður upp á.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn