Nýtt landslag að hætti Ella Egilsonar
Nýverið var sýningin Nevada opnuð í galleríinu Þulu en þar sýnir listamaðurinn Elli Egilsson ný málverk. Í nýju verkunum túlkar hann íslenska náttúru líkt og áður. „Engir sérstakir staðir eru hafðir í huga, pensillinn er látinn ráða för og verkin máluð á draumkenndan hátt með heimagerðum olíulitum þar sem listamaðurinn notar sína eigin olíulitaformúlu,“ segir í tilkynningu um sýningu Ella. Elli er sjálfmenntaður myndlistarmaður fæddur og uppalinn í Reykjavík, en hefur starfað síðustu misseri í Los Angeles og Las Vegas, þar sem hann er búsettur. Hann hefur látið til sín taka í myndlistinni undanfarin ár þar sem landslagsmálverk hans hafa
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn