Sumarsmiðjur fyrir skapandi börn
Texti: Ragna Gestsdóttir Borgarbókasafn Reykjavíkur heldur skapandi smiðjur fyrir börn vikuna 13.-16. júní. Fyrir 9-12 ára verður Einar Aron töframaður með töfraskóla, Sverrir Norland, rithöfundur og bókaútgefandi, verður með ritsmiðju fyrir skapandi skrif, Steingerður Lóa Gunnarsdóttir kennir borðspilahönnun og Hildur Kristín Stefánsdóttir lagahöfundur kennir þátttakendum að búa til eigið lag. Fyrir 13-16 ára verður borgarræktun í boði þar sem þátttakendur læra grunnatriði gróðursetningar í borgarlandinu. Upplýsingar: borgarbokasafn.is.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn