Innblástur frá gömlum námulömpum
Nýjasti lampinn frá danska hönnunarfyrirtækinu Menu er Ray-borðlampinn. Um þráðlausan led-lampa er að ræða. Hönnuðurinn er hinn breski Daniel Schofield en afi hans, Raymond, starfaði sem námumaður í Norður-Englandi og mun hafa notast við samskonar lampa í starfi sínu. Ray er vísun í nafn afa hans en þetta er einnig skemmtilegur leikur að orðum þar sem „ray“ á ensku er þýtt sem „geisli“ eða „ljósgeisli“ á íslensku og er því viðeigandi nafn á lampa. Lampinn er handhægur, rúm 80 grömm, úr duftlökkuðu áli. Hann hefur þrjár mismunandi stillingar þannig að hægt er að stýra ljósmagninu á auðveldan hátt. Ray-lampinn er
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn