Sælkeraverslun og náttúruparadís að Völlum í Svarfaðardal
Umsjón/ María Erla Kjartansdóttir Myndir/ Hallur Karlsson Sælkeraverslunin á Völlum í Svarfaðardal er orðin vinsæll áfangastaður matgæðinga víðast hvar af landinu en það eru hjónin Bjarni Óskarsson og Hrafnhildur Ingimarsdóttir, eða Haddý eins og hún er jafnan kölluð, sem reka verslunina. Þau eiga jafnframt Nings í Reykjavík, sem synir þeirra Sigurgísli og Óskar Björn reka, en þau hafa komið víða við á veitingasenunni á Íslandi. Úrvalið í versluninni er margs konar og síbreytilegt eftir árstíðum. Á boðstólum eru ýmsar gerðir af lífrænni vöru og má nefna sem dæmi eðalsultur, villt fjallagrös, hampte, pressaða hvönn, reykta osta, bleikju og ótal margt
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn