Leikur á hörpustrengi saknaðarins
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Um kanadíska tónlistarmanninn Leonard Cohen var eitt sinn sagt að hann léki á alla hörpustrengi saknaðarins og sorgarinnar í hjartanu. Daníel Hjálmtýsson hefur frá árinu 2017 kosið að minnast hans árlega með tónleikum og að þessu sinni verða þeir í Búðakirkju þann 15. október. Það er eins gott að grípa miða strax því aðeins þrjátíu eru í boði, kirkjan lítil en umhverfið einhvern veginn fullkomlega við hæfi Cohens og tónlistar hans. Hægt er að nota tækifærið og gista á Hótel Búðum og fullkomna þannig helgina. Miðarnir fást á tix.is.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn