Bækur sem breyttu heiminum
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Ef einhver hefur efast um að bækur breyti heiminum getum við fullvissað þann sama um að svo er og það hefur oft gerst. Saga Charles Dickens um munaðarleysingjann Oliver Twist breytti varanlega aðstæðum götubarna í London á nítjándu öld og bætti mjög aðstæður fátæklinga. Þessi bók hrinti einnig af stað öldu sambærilegra bóka í mörgum löndum. Bláskjár eftir Franz Hoffman, Palli sigurvegari eftir Martin Alexander Nexø og Hilda á Hóli eftir Mörthu Sandwall-Bergström. The Jungle eftir Upton Sinclair kom hreyfingu á verkalýðsmál í Bandaríkjunum og breytti hugsun manna gagnvart aðstæðum verkafólks og framkomu margra atvinnurekenda gagnvart vinnuaflinu.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn