Frískandi rommkokteill með berjum og myntu
Umsjón/ Guðný HrönnMynd/ Hallur Karlsson 5 hindber5 brómber10 myntulauf20 ml nýkreistur límónusafi1 msk. hrásykur50 ml romm, við notuðum Mount Gay Barbadosklakarsódavatn, til að fylla upp í Setjið berin, myntuna, límónusafann og hrásykurinn í kokteilhristara og kremjið vel með kokteilkremjara. Bætið klökunum saman við og hristið vel. Fyllið hátt glas með klökum og hellið drykknum í glasið í gegnum sigti. Fyllið upp í glasið með sódavatni og skreytið með myntu ef vill.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn