Servíettur til styrktar góðu málefni
Umsjón/ Maríanna Björk ÁsmundsdóttirMyndir frá framleiðana Í desember fóru svokallaðar listvíettur í sölu til styrktar Barnaspítala Hringsins. Epal og hönnunarstofan Reykjavík Letterpress koma saman að þessu verkefni en markmiðið er að fá listamenn orða og mynda til þess að fanga einfaldleika servíettuformsins. Það er myndlistarmaðurinn Leifur Ýmir Eyjólfsson sem að þessu sinni gefur verk sitt til málefnisins. Hér tengir Leifur servíettuna við leikinn sem á sér gjarnan stað á matmálstíma á milli fullorðinna og barna; einn fyrir voff voff, einn fyrir mjá mjá, einn fyrir mu mu og einn fyrir gabbidí gabb. Allur ágóði af sölunni rennur til Barnaspítala Hringsins
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn