Moss í Bláa Lóninu fær Michelin-stjörnu
Að birtast á lista Michelin hefur löngum verið talinn mikill heiður. Michelin uppfærði nýlega lista sinn yfir veitingastaði á Íslandi sem þeir hjá dekkjaframleiðandanum mæla með og fékk þar staðurinn Moss, sem staðsettur er í Bláa Lóninu, stjörnu. Fyrir höfðu aðeins tveir staðir á Íslandi fengið stjörnu frá Michelin, það er Dill og ÓX, en báðir staðir héldu sinni stjörnu. Unnið hefur verið að uppbyggingu Moss Restaurant síðan Retreat Hotel opnaði árið 2018. Agnar Sverrisson yfirmatreiðslumeistari og teymi hans hafa nú loks fengið stjörnuna eftirsóttu eftir að hafa fengið Michelin Recommended viðurkenningu síðastliðin tvö ár.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn