Rjóminn þeyttur undir berum himni
Það er fátt betra en að fá nýþeyttan rjóma út á ávexti sem steiktir hafa verið á opnum eldi í útilegunni. Það er lítið mál að þeyta rjómann úti en það þarf engin svakaleg tæki og tól. Það eina sem þarf er krukka og teskeið og svo auðvitað rjóminn. Setjið skeiðina ofan í krukkuna ásamt rjómanum, skrúfið lokið þétt á og hristið og hristið þar til rjóminn fer að stífna. Þetta tekur fremur stuttan tíma. Ef engin krukka er til taks má nota góða rennilásapoka en þá þarf að hrista fremur varlega og gott er að nota tvo til vara.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn