SKRIPO
Vinirnir Guðjón Viðarsson Scheving og Kári Þór Arnarsson skapa listaverk undir nafninu SKRIPO og blanda þeir þar saman áhuga sínum á list sköpun. Verkin eru málverk af litlum fígúrum sem mynda fjölmörg andlit sem fylla strigann. Hvert málverk er samstarf því einn byrjar að teikna augu, sá næsti nef og þannig koll af kolli þangað til andlit hafa mótast. Með þessari aðferð segja Guðjón og Kári að hvert verk verði einstakt og ófyrirsjáanlegt varðandi það hvernig það kemur út. Verkin má skoða á Instagram undir skripo_art.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn