ÚTÚRKÚ-súkkulaðigerð
Umsjón/ Maríanna Björk ÁsmundsdóttirMyndir/ Frá framleiðanda ÚTÚRKÚ-súkkulaðigerð var með námskeið í páskaeggjagerð í mars en er einnig með sín eigin lúxuspáskaegg til sölu. Þessi skapandi súkkulaðigerð var stofnuð í maí í fyrra en þau leggja ríka áherslu á hágæðasúkkulaði með kakóbaunum frá Suður-Ameríku í gæðaflokknum Fine Flavour Cacao sem telst til bragðbesta kakós í heiminum en það ber með sér sérstakan ávaxtakeim. Eggin eru þrjú; mjólkursúkkulaði, dökkt súkkulaði og hvítt súkkulaði og eru þau fagurlega skreytt með lituðu kakósmjöri. Inni í eggjunum er málsháttur ásamt ristuðum möndlum hjúpaðar súkkulaði og sykri, súkkulaðihjúpaður karamellukjarni og ristaðar möndlur með cappuccino-súkkulaði frá Arabica.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn