Lífrænn verðlaunastóll eftir Jón Hinrik og Kristine
Stóllinn Bundle var lokaverkefni Jóns Hinriks Höskuldssonar og Kristine Sejersen í húsgagnahönnun frá Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn. Stóllinn hefur unnið til fjölda verðlauna síðan hann var sýndur á 3 Days of Design í Kaupmannahöfn en á hátíðinni unnu Jón Hinrik og Kristine til New Talent Award frá Bo Bedre og Bolig Magasinet. Þau unnu einnig hönnunarkeppni sem haldin er af Plastiðnaðarsambandi Danmerkur og nokkrum dögum síðar fengu þau heiðursverðlaun Grete Jalk við útskrift sína. Jón Hinrik og Kristine vildu kanna möguleika lífræns plasts og lífrænt samsettra efna í húsgagnahönnun. Eftir ár af tilraunum og prófunum fundu þau efnasamsetningu og framleiðsluferli
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn