Ágústa Ágústdóttir, eigandi ferðaþjónustufyrirtækis og varaþingmaður, steig 25. mars í pontu Alþingis og lýsti áratugalöngu heimilisofbeldi af hendi fyrrverandi mannsins síns, Jóns Þórs Dagbjartssonar. Jón á að baki langan brotaferil og nú síðast var hann ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni, Hafdísi Báru Óskarsdóttur.
Árið 2010 var Jón fundinn sekur fyrir að misnota stúlku kynferðislega þegar hann vann á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal. Á þeim tíma gekk Ágústa hart fram gegn stúlkunum á meðferðarheimilinu í fjölmiðlum og sakaði þær um mannorðsmorð. Framgangur hennar í fjölmiðlum gerði reynslu þolenda erfiðari og sársaukafyllri, en hver er saga Ágústu? Af hverju ákveður hún að koma fram og segja söguna af áratugalöngu heimilisofbeldi og biðja stúlkurnar á meðferðarheimilinu afsökunar?
VikanVinsælt
Ágústa Ágústsdóttir segir frá áratugalöngu heimilisofbeldi: „Hann fór fljótlega að vera skrímslið sem hann er“
