Þórdís Valsdóttir lögfræðingur hefur lengi starfað í fjölmiðlum en var nýverið boðið starf upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins. Hún á tvær dætur, unnusta og þrjú stjúpbörn, stundar hreyfingu af kappi og er með óþrjótandi áhuga á mönnum og málefnum. Fullkominn dagur væri fullur af samveru við fjölskylduna, en þó alveg laus við suð frá börnunum.
