Steinunn Sigurðardóttir hefur markað sér stöðu sem einn fremsti rithöfundur Íslands en hún er mikill unnandi íslenskrar náttúru, eins og glöggt má sjá af skáldskap hennar. Árið 1995 hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsögu sína Hjartastaður og öðru sinni fyrir skáldsögu sína Ból árið 2023. Steinunn var aðeins 19 ára gömul þegar hún gaf út sína fyrstu ljóðabók og hafa bækur hennar verið þýddar á fjölda tungumála. Meðal annars kom út frönsk kvikmynd byggð á sögu hennar Tímaþjófnum árið 1999. Um árabil hefur Steinunn búið hluta hvers árs erlendis, lengst af í Þýskalandi og Frakklandi, en einnig hefur hún dvalið í öðrum Evrópulöndum, Bandaríkjunum og Japan. Í dag er hún búsett á Selfossi og í Berlín.
