Graskersfræ
Þessi fínu fræ koma úr fræholi graskersins. Þegar ytri skelin hefur verið fjarlægð eru þau grænleit og hafa keim af hnetu og sætu. Þessi litlu næringarríku fræ innihalda ríkulegt magn af próteini, hollum fitusýrum og dýrmætum steinefnum eins og magnesíum, sinki og járni. Magnesíum hefur til dæmis jákvæð áhrif á blóðsykurstjórnun, blóðþrýsting, hjartaheilsu og beinþéttni. Auk þess eru graskersfræ stútfull af andoxunarefnum sem geta dregið úr bólgum í líkamanum og bætt almennt heilsufar. Þau eru einnig mjög trefjarík og þar sem flest mættu við að auka trefjainntöku eru þau frábær og einföld viðbót við flestar máltíðir eða sem millimál. Þau
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn