Völvan hafði puttana mun betur á púlsinum þegar kom að íslensku menningarlífi á árinu
Völvan spáði því rétt að Lína Langsokkur yrði aftur sett upp, en leikritið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu síðan í haust. Þá nefndi Völvan verkið Hamlet í spá sinni, en það verk er á fjölum Borgarleikhússins um þessar mundir í túlkun Sigurbjarts Sturlu Atlasonar. Þá sagði Völvan að eldri föður innan leikhússins myndi fæðast barn, en leikaraparið Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir eignuðust dóttur á vormánuðum og tilkynntu þungun hennar eftir að Völvuspáin hafði verið skrifuð. Einn merkilegasti, en jafnframt kryptískasti, spádómur Völvunnar í fyrra var rauði liturinn sem henni þótti sveipa leikstjórann Baltasar Kormák.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn