Svíta og stofa í sama rými
Umsjón/ Matthildur Hafliðadóttir Myndir/ Sunna Gautadóttir Steinsnar við Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur má finna perlu frá árinu 1928. Þar hefur Bjargey Ingólfsdóttir skapað sér hlýlegt og notalegt heimili. Bjargey starfar við markaðsmál á samfélagsmiðlum og hefur meðal annars skapað litakort með Farver sem naut mikilla vinsælda. Á heimilinu býr einnig sonur Bjargeyjar, hann Ingólfur Birgir, en hún á einnig tvær eldri dætur, þær Bryndísi Ingu og Hrafnhildi Elsu, sem koma reglulega heim í mömmumat. Saman á fjölskyldan gleðigjafann Spora sem er havanese-hundur. Hjá Bjargeyju er því oft fullt hús fjölskyldu og vina í mat eða ljúffengum pönnukökum á sunnudögum. Byggingin
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn