Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, eða Dísa eins og hún er gjarnan kölluð, hefur gert garðinn frægan á hinum ýmsu sviðum síðustu ár. Ef hún er ekki að brillera í leikhúsinu er hún að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar í Söngvakeppninni eða spýta út úr sér rímum með hljómsveit sinni á tónlistarhátíðum víðs vegar um Evrópu. Hún lætur þó ekki þar við sitja heldur hefur hún einnig slegið í gegn á samfélagsmiðlum með einlægan húmorinn að vopni. Dísa er mikill fagurkeri og alltaf með puttana á púlsinum þegar kemur að tískunni og því fannst okkur tilvalið að fá hana til þess að deila með okkur hvað það er sem er á óskalistanum hjá henni þessa stundina.