Affogato með koníaki og heslihnetum
Umsjón/Folda GuðlaugsdóttirMyndir/Hallur Karlsson Þeir gerast varla einfaldari eftirréttirnir. Þessi klassíski ítalski réttur slær alltaf í gegn en í grunninn er hann kúla af góðum vanilluís með skoti af espressókaffi hellt yfir. Hér höfum við sett hann í sparibúninginn með góðum líkjör og ristuðum heslihnetum. Affogato með koníaki og heslihnetum fyrir 4-6 1 l vanilluís 120 ml koníak, eða góður líkjör ef vill 50 g heslihnetur, ristaðar, afhýddar og skornar smátt 6 skot espressó Setjið ís yfir í glös eða skálar. Hellið koníaki yfir og sáldrið yfir heslihnetum. Berið fram strax með espressókaffi til að hella yfir.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn