Áhrifamikil og umhugsunarverð bók
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Daughter eftir Öldu Sigmundsdóttur er einstaklega athyglisverð bók um uppvöxt í skugga persónuleikaröskunar foreldris. Hana má flokka með svokölluðum skáldævisögum en sú bókmenntagrein er vaxandi um allan heim. Höfundar byggja á eigin minningum og reynslu en vegna þess að aldrei er hægt að fullyrða að upplifanir eins séu hinn eini sannleikur hefur orðinu skáld verið hnýtt framan við ævisögu. Alda er fædd í byrjun sjöunda áratugarins á Íslandi. Foreldrar hennar voru listafólk og áberandi á sínu sviði þegar hún man fyrst eftir sér. Mikill munur var þó strax á sambandi hennar við föður sinn og móður. Barnið
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn