Bakaður camembert-ostur með pekanhnetum og hlynsírópi

Umsjón: Folda GuðlaugsdóttirStílisti: Guðný HrönnMynd: Hallur Karlsson 100 g pekanhnetur3 msk. hlynsíróp1 msk. púðursykur1 stk. camembert-ostur Setjið pekanhnetur, hlynsíróp og púðursykur á litla pönnu og hafið á miðlungsháum hita. Eldið þar til sykurinn er uppleystur, hrærið blönduna vel saman við hneturnar. Takið af hitanum, hellið yfir á disk með bökunarpappír undir og látið kólna. Skerið toppinn af ostinum og fjarlægið umbúðir. Setjið ost í eldfast mót og bakið við 190°C í u.þ.b. 10-12 mín. Takið ostinn úr, myljið hneturnar gróflega yfir, berið fram strax með stökku brauði eða kexi.
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn