Bókakaffi með Árelíu
11. nóvember 2021
Eftir Ritstjórn Vikunnar
Texti: Ragna Gestsdóttir Mánudaginn 15. nóvember verður bókakaffi í Borgarbókasafninu í Árbæ með Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rithöfundi. Árelía gaf nýlega út þriðju skáldsögu sína, Slétt og brugðið, sem fjallar um sex konur sem í fjöldamörg ár hafa hist í saumaklúbbi. Dag einn ákveða þær hins vegar að gera eitthvað allt annað en vanalega þegar þær koma saman. Þetta hrindir af stað óvæntri atburðarás sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf þeirra. Upplýsingar: borgarbokasafn.is.
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn