Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
dflip
post
dflip

Ég loníetturnar lét á nefið 

Gleraugnatískan er jafn síbreytileg og hver önnur en gleraugu eru oft dýr fjárfesting og kannski ekki eitthvað sem við endurnýjum jafn auðveldlega og flíkurnar í skápnum. Það getur því verið gott að velja klassískan stíl sem fer aldrei úr tísku, en það er þó freistandi að leyfa sér að prófa ný trend sem eru kannski aðeins út fyrir kassann. Í ár eru alls konar umgjarðartýpur áberandi og það ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við sjáum, eða sjáum ekki, gegnsæjar umgjarðir, ávöl gleraugu – bæði kringlótt og sporöskjulaga, og gleraugu í laginu eins og kattaraugu. Þunnar málmumgjarðir eru að koma sterkar inn sem og hin sívinsælu flugmannagleraugu og ekki skemmir fyrir þegar þau eru skyggð og í yfirstærð.

Texti: Steinunn Jónsdóttir

Myndir: Frá söluaðilum og af vef

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.