Fiber Chair í nýrri útgáfu
Skandinavíska fyrirtækið Muuto kynnti nýverið endurbætta útgáfu af Fiber Chair-stólunum sínum. Fiber Chair-stólarnir litu fyrst dagsins ljós árið 2014 og er upprunaleg hönnun úr plasti og viðartrefjum en endurunnið plast er í aðalhlutverki í nýju útgáfunni. Þar er yfir 80% af plastinu sem er notað í stólana endurunnið. Nýja útgáfan kemur á markað í vor. Hönnunardúóið Iskos-Berlin hannaði Fiber Chair-stólana fyrir Muuto. Þeir segja plast vera frábært hráefni með mikla möguleika en benda á að gallinn sé sá að það getur haft skaðleg áhrif á umhverfið ef það ratar út í náttúruna og því hafi þeim þótt þetta eðlileg framþróun.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn