Fimm góð heilsuráð frá Valdísi Helgu 

Valdís Helga Þorgeirsdóttir er fyrirmynd margra þegar kemur að hreyfingu og heilsueflingu en hún starfar sem þjálfari hjá Primal og í Hreyfingu heilsulind og verkefnastýra hjá Æskulýðsvettvangnum. Hún er íþróttafræðingur og jógakennari að mennt og hefur lifað og hrærst í heilsugeiranum síðasta áratuginn. Þegar hún er spurð hvort hún sé með einhver markmið fyrir árið 2024 liggur ekki á svörum. „Halda góðri líkamlegri og andlegri heilsu er alltaf markmiðið. Ég er líka með nokkur markmið sem snúa að handstöðum en mér finnst einstaklega gaman að vera bókstaflega á hvolfi flesta daga,“ segir hún og hlær. Næst á dagskrá hjá henni er einmitt handstöðu-vinnustofa fyrir byrjendur í Primal fyrir þau sem vilja læra grunninn að því skemmtilega sporti. „Handstöður eru stórt áhugamál og ástríða hjá mér og ég er mjög spennt fyrir því að miðla því áfram til þeirra sem mæta í vinnustofuna.“ Það er svo ýmislegt annað á döfinni hjá þessari hraustu konu til að mynda jógaferð í sveitasæluna á Ítalíu í haust og alls konar ferðalög innanlands í sumar þegar veður leyfir. 

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.