Frumlegar gjafir fyrir börnin
Umsjón/ María Erla Kjartansdóttir Mynd/ Hallur Karlsson Ýmsar skemmtilegar útfærslur af gjafainnpökkun fyrir börnin sem hægt er að sníða á ótal vegu. Þrjár kynslóðir sameinuðust við gerð þessara jólagjafa og áttu gæðastund saman. Allt sem til þarf er einfaldur gjafapappír og pappírsarkir í hinum ýmsu litum, límstifti og skæri. Það er sniðugt að notast við afgangspappír eða -dagblöð til að mynda fígúrur á pakkana. Hægt er að útbúa dúsk, eins og hér sést, úr garni sem þrætt er á gaffal. Garnið er bundið saman þegar hæfileg stærð hefur náðst og dúskurinn síðan klipptur til. Njótið!
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn