Gaurinn sem grét of mikið
9. desember 2021
Eftir Ritstjórn Vikunnar

Ég myndi ekki segja að ég sé dauð að innan en ég græt svo sem ekki yfir hverju sem er og hvenær sem er. Gaurinn sem ég deitaði fyrir ekki svo löngu síðan grét hins vegar eins og honum væri borgað fyrir það, og alltaf eftir kynlíf. Fyrst hélt ég að hann væri að hlæja. Hann kjökraði einhvern veginn og það hljómaði eins og niðurbældur hlátur. Þegar ég spurði hvað væri svona fyndið, leit hann forviða – og tárvotur – á mig og sagði: „Fyndið? Ekki neitt!“ Svo saug hann upp í nefið og hélt áfram að vola. Ó, guð,...
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn